
Nadía og tölvuleikurinn

| Serie | Nadía og netið (3) |
|---|---|
| Författare | |
| Medverkande | |
| Förlag | Boksmart Skola |
| Genre | Skönlitteratur barn och ungdom |
| Format | Inbunden |
| Språk | |
| Antal sidor | 52 |
| Vikt | 206 gr |
| Utgiven | 2026-09-22 |
| SAB | Hdc,u |
| ISBN | 9789935984333 |
Nadía elskar að spila Zombiecraft. Sérstaklega er gaman að spila með Alex. Nadía bráðnar í hvert sinn sem hún sér hann. Svo byrja óhugnanlegir hlutir að gerast í Zombiecraft og á sama tíma breytist Alex. Nadíu langar að segja mömmu sinni frá öllu, en hún er upptekin með Magga sem er alltaf í heimsókn hjá þeim. Hvað á Nadía að gera – og hver getur hjálpað Alex? Nadía og tölvuleikurinn er þriðja bókin í seríunni um Nadíu. Bókunum er ætlað að auðvelda fullorðnum og börnum að hefja samtöl um lífið á netinu.
Caroline Engvall er rithöfundur, blaðamaður og fyrirlesari. Fyrsta bók hennar, ævisagan 14 år till salu, kom út 2008 og hefur selst í yfir 200 þúsund eintökum. Síðan þá hefur hún varið miklum tíma í baráttu gegn kynferðislegri misnotkun ungs fólks, meðal annars með fræðsluefni, vefsíðum, hlaðvörpum og heimildarmyndum. Hún er einn helsti sérfræðingur Svíþjóðar á þessu sviði.


























