
Snjallræði Nadíu

| Serie | Nadía og netið (2) |
|---|---|
| Författare | |
| Medverkande | |
| Förlag | Boksmart Skola |
| Genre | Skönlitteratur barn och ungdom |
| Format | Inbunden |
| Språk | |
| Antal sidor | 44 |
| Vikt | 193 gr |
| Utgiven | 2026-09-22 |
| SAB | Hdc,u |
| ISBN | 9789935984326 |
Nadía er orðin tíu ára og fær nýjan síma. Þetta er besti dagur ævi hennar – þangað til hún uppgötvar andstyggilegar athugasemdir sem gerðar hafa verið við dansmyndbönd vinkonu sinnar. Hver gerir svona – og hvernig getur Nadía hjálpað vinkonu sinni? Snjallræði Nadíu er önnur bókin í seríunni um Nadíu. Bækurnar munu auðvelda fullorðnum og börnum að hefja samtöl um lífið á netinu.
Caroline Engvall er rithöfundur, blaðamaður og fyrirlesari. Fyrsta bók hennar, ævisagan 14 år till salu, kom út 2008 og hefur selst í yfir 200 þúsund eintökum. Síðan þá hefur hún varið miklum tíma í baráttu gegn kynferðislegri misnotkun ungs fólks, meðal annars með fræðsluefni, vefsíðum, hlaðvörpum og heimildarmyndum. Hún er einn helsti sérfræðingur Svíþjóðar á þessu sviði.























